5:2 Mataræðið með Lukku í Happ

5:2 Mataræðið með Lukku í Happ

2.999 kr.

Vinsældir 5:2 mataræðisins hafa farið eins og eldur í sinu um heiminn á undanförnum misserum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að fasta getur haft margvísleg jákvæð á fólk, bæði þá sem þjást af kvillum eða sjúkdómum sem og þá sem vilja auka almennt heilbrigði sitt og vellíðan. 5:2 mataræðið gengur út á að tvo daga vikunnar er hitaeiningainnihaldi fæðunnar haldið í 500-600 kaloríum en aðra daga heldur fólk sig við sitt hefðbundna mataræði. Þessi leið hefur reynst fólki mjög viðráðanleg og þegar áhrifin gera vart við sig í bættri líðan og þyngdartapi verður ávinningurinn ótvíræður. 

Unnur Guðrún Pálsdóttir, höfundur bókarinnar, betur þekkt sem Lukka, hefur rekið veitingastaðinn Happ um nokkurra ára skeið. Happ býður upp á heilsusamlegan mat, næringarráðgjöf, fræðslu, fyrirlestra og veisluþjónustu. Lukka hefur áralanga reynslu af því að veita fólki næringarráðgjöf og matreiða fyrir einstaklinga og hópa sem vilja rétt samsettan og næringarríkan mat, hafa viljað fasta eða breyta áherslum í mataræði sínu. Hér leiðbeinir Lukka lesendum um 5:2 mataræðið, gefur nauðsynleg ráð og frábærar uppskriftir að næringarríkum og heilnæmum réttum. Ef þú vilt prófa 5:2 eða bæta mataræðið þitt færðu hér allt sem þú þarft.

Viltu bæta heilsuna, öðlast meiri orku og skýrari hugsun? Viltu losna við bjúg og missa aukakíló? Þá er 5:2 mataræðið eitthvað fyrir þig.

Titill 5:2 Mataræðið með Lukku í Happ
Flokkur Guðrún Lukka Pálsdóttir
Gerð vöru Bækur
Útgáfudagur Apr 11, 2014