Íslenskir kommúnistar

Íslenskir kommúnistar

5.499 kr.
Í þessari sérlega fróðlegu og vel skrifuðu bók er rakin saga íslenskra kommúnista í máli og myndum frá því að Brynjólfur Bjarnason tók þátt í götuóeirðum í Kaupmannahöfn haustið 1918 og fram til þess að þau Margrét Frímannsdóttir og Svavar Gestsson þáðu boðsferð til kommúnistaflokks Kúbu haustið 1998. Óslitinn þráður var frá fyrstu aðdáendum kommúnismans til hinna síðustu. Nú hafa allar myndir af Stalín verið teknar niður í betri stofum á Íslandi en eftir stendur, að hreyfing íslenskra kommúnista náði hér meiri áhrifum en víðast annars staðar í lýðræðisríkjum, ekki aðeins í stjórnmálum heldur einnig í verkalýðshreyfingu og menningarlífi. 624 bls. og yfir 400 ljósmyndir prýða bókina. ISBN 978-9935-426-19-2. Almenna bókafélagið.
Titill Íslenskir kommúnistar
Flokkur Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Gerð vöru Bækur
Útgáfudagur Oct 30, 2011