Svarta kisa fer í bað

Svarta kisa fer í bað

Flokkur: Nick Bruel
999 kr.

Svarta kisa þarf virkilega að fara í bað, til þess þarf eitt baðker, nóg af vatni, þurr handklæði, herklæðnaður, bréf til ástvina, hrein nærföt (vegna þess að streituvaldandi aðstæður geta valdið „slysum“), sjúkrabíll í innkeyrsluna þína með vélinni í gangi, já, þú þarft einnig Svörtu kisu. . . en gangi þér vel með það! Svarta kisa vill ekki fara í bað og sápan …

Svarta kisa er fræðandi, fyndin, skemmtileg, ófyrirsjáanleg, með svartan húmor og algjör prakkari sem hentar vel 7-10 ára. Fjörugar bækur, ríkulega myndskreyttar og húmor sem bæði foreldrar og börn hafa gaman af og oft er flissað við lesturinn bókanna. Það er farið aðeins inná tilfinningar, pirring, reiði, gleði og sorg og það er hægt að tengja atburði sem svarta kisa lendir í, við daglegt líf barnanna. Á íslensku eru komnar fjórar bækurnar um ævintýri Svörtu kisu, þið verðið ekki fyrir vonbrigðum!

Umsagnir barna:
„Skemmtileg og spennandi“ - „Svarta kisa er skemmtileg kisa“ - „Hún var skemmtileg, svona erfið og ekki erfið“ - „Ég rann í gegnum bókina á ógnarhraða, hún var það spennandi“.

7-10 ára

Titill Svarta kisa fer í bað
Flokkur Nick Bruel
Gerð vöru Bækur
Útgáfudagur Sep 24, 2018