Blómamánamorðin

Blómamánamorðin

Flokkur: David Grann
2.999 kr.

Blómamánamorðin er æsispennandi sakamálasaga byggð á sönnum atburðum. Í Osage-sýslu í Oklahoma bjó auðugasti hópur fólks í heimi á þriðja áratug 20. aldar. Ástæðan var olía. Eftir að olía fannst undir landi Osage-indíána óku þeir í glæsibifreiðum með einkabílstjóra og bjuggu í lúxusvillum. Innan skamms tóku þeir þó að falla einn af öðrum fyrir morðingjahendi. Þegar fórnarlömbunum hélt áfram að fjölga tók hin nýstofnaða Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) málið upp undir stjórn hins unga og dulráða forstjóra hennar, J. Edgars Hoovers. Hófst þar með afhjúpun eins kaldrifjaðasta samsæris í sögu Bandaríkjanna.

Titill Blómamánamorðin
Flokkur David Grann
Gerð vöru Bækur
Útgáfudagur May 23, 2019