Landsdómsmálið

Landsdómsmálið

5.999 kr.
Þjóðin varð fyrir miklu áfalli, þegar bankarnir hrundu allir í október 2008.
En fráleitt var að draga Geir H. Haarde forsætisráðherra einan til ábyrgðar
á bankahruninu, eins og naumur meiri hluti Alþingis gerði með því að leiða
hann fyrir landsdóm. Málshöfðunin var niðurstaða stjórnmálarefja. Þótt
landsdómur sýknaði Geir í öllum aðalatriðum, var einnig langsótt að halda
því fram, að hann hefði brotið stjórnarskrána með því að setja hættu á
bankahruni ekki á dagskrá ráðherrafunda. Til þess var beitt lagaklækjum,
ekki lögum. Í ljós kom, að þrír dómendur í landsdómi voru vanhæfir
sökum fjármálavafsturs og annarra hagsmunaárekstra, auk þess sem
málsmeðferð var á öllum stigum meingölluð. Neyðarlögin, sem Geir beitti
sér fyrir, reyndust hins vegar gæfuspor. Margt óvænt kemur fram í þessari afar áhugaverðu bók dr. Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar prófessors.
Titill Landsdómsmálið
Flokkur Almenna bókafélagið
Gerð vöru Bækur
Útgáfudagur Nov 03, 2022