Eistland - smáþjóð undir oki erlends valds

Eistland - smáþjóð undir oki erlends valds

Flokkur: Anders Küng
1.999 kr.

Höfundurinn var sænsk-eistneskur rithöfundur, sem lýsti markvissum tilraunum rússnesku ráðstjórnarinnar til að má af eistnesku þjóðinni sérkenni og svipta hana sjálfsvitund, eftir að Rauði herinn tók landið 1940 og það var neytt inn í Ráðstjórnarríkin. En gömul kona í Tallinn sagði við Küng í Eistlandsferð: „Segðu þeim, að Eistland sé lifandi.“

Bókin kom út hjá Almenna bókafélaginu 1973 í þýðingu Davíðs Oddssonar, sem þá var laganemi, en skömmu eftir að hann tók við embætti forsætis- ráðherra 1991, varð Ísland fyrsta ríkið til að taka á ný upp stjórnmálasamband við Eystrasaltsríkin þrjú. Með formála og skýringum eftir prófessor Hannes H. Gissurarson.

Titill Eistland - smáþjóð undir oki erlends valds
Flokkur Anders Küng
Gerð vöru Bækur
Útgáfudagur May 29, 2019